Bílastæði á Keflavíkurflugvelli
Viðskiptavinir SIXT langtímaleigu með Platinum tryggingu á samningnum sínum geta lagt bílnum sínum á bílastæðinu hjá SIXT á Keflavíkurflugvelli.
Innifalið í Platinum tryggingunni er að fá að leggja bílnum tvisvar á hverju tólf mánaða tímabili. Til að sækja um bílastæði þarf að fylla út formið hér til hliðar.
Athugið að stæðaframboð er takmarkað og ræðst af framboði hverju sinni hvort hægt sé að verða við beiðninni. Beiðni þarf að berast með að minnsta kosti 3 virkra daga fyrirvara. Verði hægt að verða við beiðninni þinni muntu fá frekari leiðbeiningar í tölvupósti.
Aðrir viðskiptavinir SIXT langtímaleigu geta einnig óskað eftir bílastæði hjá SIXT á Keflavíkurflugvelli gegn gjaldi að upphæð 1.690 krónur á dag.
Fyrir frekari upplýsingar eða spurningar, vinsamlegast hafðu samband við þjónustuver okkar.