Skráning akstursstöðu
Leiðbeiningar um skráningu á akstursstöðu ökutækis
Fram til þessa hefur kílómetragjald einungis verið innheimt af rafmagns og tengiltvinnbílum. Gjaldið var 6 krónur á hvern ekinn kílómetra fyrir rafmagnsbíla og 2 krónur fyrir tengiltvinnbíla.
Frá og með 01.01.2026 tekur gildi nýtt fyrirkomulag þar sem kílómetragjald verður innheimt af öllum ökutækjum óháð orkugjafa. Gjaldið verður það sama fyrir alla bíla og nemur 6,95 krónum á hvern ekinn kílómetra í samræmi við ný lög.
Því er mikilvægt að viðskiptavinir Sixt langtímaleigu skrái akstursstöðu ökutækis síns reglulega og að lágmarki tvisvar á ári. Með því tryggjum við gagnsæi og rétt uppgjör gagnvart þér sem okkar viðskiptavini.
Gjaldtaka kílómetragjalds:
Allir bílar bera sama kílómetragjald eða 6,95 krónur fyrir hvern ekinn kílómetra.
Sixt rukkar kílómetragjald mánaðarlega í samræmi við innifalinn akstur samkvæmt samningi.
Við skil á ökutæki fer fram lokauppgjör á kílómetragjaldi
Allar nánari upplýsingar um kílómetragjald stjórnvalda má finna á vefsíðunni www.vegirokkarallra.is