Umsóknarferlið

Hvað geri ég til að fá bíl í langtímaleigu?

Ferlið við að fá bíl í langtímaleigu hjá SIXT er einfalt, þægilegt og hannað til að mæta þörfum hvers viðskiptavinar. Hér að neðan er skref-fyrir-skref leiðbeiningar um hvernig umsóknarferlið virkar:

1. Veldu bíl

Veldu flipann “Bílarnir” hér fyrir ofan til að skoða það úrval bíla sem eru í boði fyrir langtímaleigu. Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval ökutækja, allt frá smábílum fyrir borgarakstur til stærri jeppa fyrir krefjandi aðstæður. Ítarlegri upplýsingar um stærð, búnað, eldsneytisnotkun og viðbótarþjónustu sem hægt er að bæta við er hægt að finna með því að smella á þann bíl sem þú villt skoða. Þannig getur þú valið bíl sem hentar best þínum þörfum og lífsstíl.

2. Sæktu um

Þegar þú hefur valið bíl skaltu smella á “Sækja um” hnappinn. Þar geturðu sérsniðið leigusamninginn með því að:
  • Velja samningstegund og lengd.
  • Velja innifalinn akstur á mánuði.
  • Velja tryggingarpakka sem henta þínum þörfum.
  • Bæta við aukahlutum, eins og barnabílstólum eða nagladekkjum.
  • Velja afhendingarstað fyrir bílinn, en við bjóðum upp á afhendingu í Reykjavík og á Keflavíkurflugvelli.
  • Þetta gerir umsóknina sveigjanlega og aðlagar hana að þínum þörfum.

3. Umsóknarferli

Fylltu inn allar nauðsynlegar upplýsingar í umsóknina, þar á meðal:

  • Persónuupplýsingar (nafn, kennitala og heimilisfang).
  • Samskiptaupplýsingar (símanúmer og netfang).

Við yfirförum umsóknina innan 1–2 virkra daga. Við munum hafa samband við þig til að fá frekari gögn sem vantar, afrit af ökuskírteini og lánshæfismati creditinfo og til að ganga frá öllum smáatriðum áður en umsóknin er samþykkt.

4. Samningur og greiðsla

Þegar umsóknin hefur verið samþykkt sendum við þér rafrænan greiðsluhlekk fyrir fyrstu greiðslu. Á sama tíma færðu rafrænan leigusamning til undirritunar í gegnum tölvupóst. Þetta ferli tryggir skjótan og pappírslausan samningsgang sem auðveldar viðskiptavinum að ganga frá formlegheitunum.

5. Bíll klár til afhendingar

Þegar samningur hefur verið undirritaður og greiðsla staðfest hefst undirbúningur bílsins. Við tryggjum að bíllinn sé yfirfarinn, hreinn og í toppstandi áður en hann er afhentur. Þetta ferli getur tekið allt að 5 virka daga. Þegar bíllinn er tilbúinn færðu tilkynningu í tölvupósti, með nánari upplýsingum um afhendingarstað og tíma.

Þægileg og skilvirk þjónusta

Allt umsóknarferlið fer fram rafrænt í gegnum heimasíðu okkar og samskipti við þig fara fram með tölvupósti til að tryggja hraða og skilvirkni í ferlinu. Við leggjum okkur fram við að veita faglega og þægilega þjónustu fyrir alla viðskiptavini okkar.

Ef þú hefur spurningar eða þarft frekari aðstoð á meðan á umsóknarferlinu stendur, hvetjum við þig til að hafa samband við þjónustuver okkar. Við erum hér til að tryggja að þú fáir bestu mögulegu upplifunina í langtímaleigu með SIXT.

Scroll to Top