Þjónustuaðilar SIXT langtímaleigu

Við hjá SIXT langtímaleigu bjóðum upp á víðtæka þjónustu í gegnum samstarfsaðila okkar, sem tryggir að viðskiptavinir okkar njóti framúrskarandi þjónustu hvenær sem þeim hentar. Við ásamt samstarfsaðilum okkar leggjum okkur fram við að veita framúrskarandi og skilvirka þjónustu. Fyrir allar frekari upplýsingar er hægt að hafa samband í gegnum tölvupóst á langtimaleiga@sixt.is eða í gegnum vefspjallið okkar á sixtlangtimaleiga.is

Almennt viðhald/bilanir, smurþjónusta, bremsur og peruskipti

Bílabúð Benna
Tangarhöfða 8-12, Reykjavík

Bókið tíma hjá thjonusta@benni.is eða í síma 590-2050

Dekkjaskipti og hjólbarðaþjónusta


Nesdekk
Breiðhöfða, Skeifunni og Fiskislóð

Bókið tíma á vefsíðunni nesdekk.is/sixt

Aðalskoðun

Skoðunarstöðvar Frumherja um allt land.

Lista yfir skoðunarstöðvar má sjá hér

Vegna tjóna

Fylltu út tjónstilkynningu á arekstur.is og hafðu samband við langtimaleiga@sixt.is fyrir næstu skref.

Neyðarþjónusta – Aðstoð utan opnunartíma

Við bjóðum neyðarþjónustu fyrir viðskiptavini okkar utan opnunartíma þegar bíll er óökufær og ógnar umferðaröryggi í kringum sig. Neyðarþjónustan er til að tryggja öryggi og lágmarka óþægindi í slíkum aðstæðum. Við getum ekki tryggt að nýr bíll verði tiltækur til að skipta út fyrir bilaðan bíl utan hefðbundins opnunartíma. Hins vegar munum við gera okkar besta til að veita viðeigandi aðstoð eins fljótt og auðið er.

Hvernig á að hafa samband:

Fyrir neyðartilvik skal senda skilaboð í gegnum WhatsApp í númerið 782-2222.

 

Opnunartími neyðarþjónustu:

Alla daga frá 07:00 – 20:00.

Scroll to Top